Reiðmaðurinn I

Reiðmaðurinn I 2026-2027

Reiðmaðurinn er nám fyrir hestafólk sem sameinar verklega reiðkennslu, bóklegt fjarnám og markvissa heimavinnu milli kennsluhelga. Verklegi hlutinn er í forgrunni þar sem nemendur vinna með eigin hest undir leiðsögn reyndra reiðkennara.

Námið er á framhaldsskólastigi og byggist upp í þrepum:

  • Reiðmaðurinn I leggur grunninn
  • Reiðmaðurinn II dýpkar þekkingu og færni
  • Reiðmaðurinn III er einstaklingsmiðað framhald þar sem nemandi vinnur markvisst út frá eigin markmiðum og þjálfunaráætlun
Birna Tryggvadóttir Thorlacius

Birna Tryggvadóttir Thorlacius

Verkefnastjóri og reiðkennari

birnat@lbhi.is
+354 699 6116

Birna er með reiðkennara- og þjálfaramenntun frá Háskólanum á Hólum og B.Sc. gráðu í Búvísindum frá Landbúnaðarháskóla Íslands. Hún hefur starfað sem reiðkennari bæði innan- og utanlands og starfað hjá hestamannafélögum víðsvegar um landið. Birna hefur komið víða að félagsmálum hestamanna og verið í ýmsum nefndum þeim tengdum. Til að mynda stjórn LH, fagráði í hrossarækt ofl.

Birna hefur mikla og víðtæka reynslu á sviðum hestamennskunnar og starfað innan greinarinnar til fjölda ára. Auk þess að hafa mikla reynslu af bæði keppni og sýningum, hefur hún ræktað hross í fremstu röð kennd við Garðshorn á Þelamörk. Það bú er margverðlaunað fyrir góðan árangur og var til að mynda keppnishestabú ársins 2024.

Reiðmaðurinn I

Reiðmaðurinn I er verklegt og bóklegt nám í reiðmennsku og hestafræði fyrir hestafólk sem vill byggja upp traustan grunn, verða öruggara í sinni hestamennsku og skilja betur samspil knapa og hests.

Í náminu er lögð áhersla á reiðfærni knapans, ásetu, jafnvægi, samhæfingu ábendinga og markvissa grunnþjálfun reiðhestsins. Nemendur læra af kennaranum, samnemendum og eigin framvindu og fá verkfæri til að vinna áfram heima á milli verklegra kennsluhelga.

Tvær annir, 18 einingar á framhaldsskólastigi (fein).

Reiðmaðurinn I er fyrir hestafólk sem vill:

  • Verða öruggari og meðvitaðri knapar
  • Skilja betur hvernig hesturinn lærir og bregst við ábendingum
  • Byggja upp traustan grunn í þjálfun og samskiptum við hestinn
  • Fá markvissa verklegra kennslu með eigin hest
  • Fræðast um grunnreiðmennsku, sögu hestsins, fóðurfræði og heilsufræði
  • Sækja einingarbært nám í reiðmennsku og hestafræði

Helstu áherslur

  • Vinna með slakandi og liðkandi æfinga
  • Bæta ásetu, jafnvægi og samhæfingu ábendinga
  • Vinna með hest við hendi og á baki
  • Skipuleggja vinnustund með upphitun, vinnukafla og slökun
  • Skilja betur tengsl ábendinga, líkamsbeitingar og náms hestsins

Reiðmaðurinn I