Welcome to WordPress. This is your first post for your new 1984 hosted website. Get started now!
New site created
– TAKTU NÆSTA SKREF MEÐ HESTINUM ÞÍNUM –
Reiðmaðurinn er nám fyrir hestafólk sem sameinar verklega reiðkennslu, bóklegt fjarnám og markvissa heimavinnu milli kennsluhelga. Verklegi hlutinn er í forgrunni þar sem nemendur vinna með eigin hest undir leiðsögn reyndra reiðkennara.
Námið er einingarbært á framhaldsskólastigi og byggist upp í þrepum:
Reiðmaðurinn I leggur grunninn, Reiðmaðurinn II dýpkar þekkingu og færni, og Reiðmaðurinn III er einstaklingsmiðað framhald þar sem nemandi vinnur markvisst út frá eigin markmiðum og þjálfunaráætlun.
REIÐMAÐURINN I
Reiðmaðurinn I er verklegt og bóklegt nám í reiðmennsku og hestafræði fyrir hestafólk sem vill byggja upp traustan grunn, verða öruggara í sinni hestamennsku og skilja betur samspil knapa og hests.
Í náminu er lögð áhersla á reiðfærni knapans, ásetu, jafnvægi, samhæfingu ábendinga og markvissa grunnþjálfun reiðhestsins. Nemendur læra af kennaranum, samnemendum og eigin framvindu og fá verkfæri til að vinna áfram heima á milli verklegra kennsluhelga.
Námið er tvær annir og metið til 18 eininga á framhaldsskólastigi (fein).
FYRIR HVERJA
Reiðmaðurinn I er fyrir hestafólk sem vill:
- Verða öruggari og meðvitaðri knapar
Skilja betur hvernig hesturinn lærir og bregst við ábendingum - Byggja upp traustan grunn í þjálfun og samskiptum við hestinn
- Fá markvissa verklegra kennslu með eigin hest
- Fræðast um grunnreiðmennsku, sögu hestsins, fóðurfræði og heilsufræði
Sækja einingarbært nám í reiðmennsku og hestafræði
HELSTU ÁHERSLUR
Vinna með slakandi og liðkandi æfinga
Bæta ásetu, jafnvægi og samhæfingu ábendinga
Vinna með hest við hendi og á baki
Skipuleggja vinnustund með upphitun, vinnukafla og slökun
Skilja betur tengsl ábendinga, líkamsbeitingar og náms hestsins
Að loknum Reiðmanninum I hefur nemandi lagt grunn að markvissari þjálfun og getur haldið áfram í Reiðmanninn II.
FÆRNI SEM NEMENDUR ÖÐLAST
- Færni í að vinna með hest við hengi
- Beita hliðarhvatningu við hendi
- Undirbúa opinn sniðgang við hendi
- Framkvæma krossgang við hendi
- Framkvæma gangskiptingar milli fets og brokks við taum
- Láta hest ganga krossgang til beggja handa
- Hafa vald á stígandi ásetu
- Ríða hesti við taum á baug með hestinn rétt sveigðan
- Stækka baug
- Ríða hægra og vinstra stökk með áherslu á gangskiptingarnar
- Undirbúa tölt og ríða tölt á vinnuhraða, hægja niður á fet og stöðva
- Vísa hesti niður í taumur gefinn
- Færni í að hestur og knapi skilji ábendingu að lengja hálsinn
- Skipuleggja vinnustund með upphitun, vinnukafla og slökun
- Láta hest ganga aftur á bak
- Ríða við hálshring
- Ríða opinn sniðgang a.m.k á feti
- Beita hliðarhvatningu á hring (færa afturhluta á hring)
- Nota stígandi ásetu á brokki
- Nánari upplýsingar um skipulag námsins, námsmat, undirbúningskröfur, kostnað og fleira er að finna hér fyrir neðan og mikilvægt að kynna sér þær upplýsingar vel áður en gengið er frá umsókn.
Dagsetningar verklegra helga á haustmisseri verða settar inn um leið og þær berast.
Fræðsludagur Reiðmannsins verður haldinn laugardaginn 31. október í Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi og eftir hádegi er dagskrá í hestamiðstöð Landbúnaðarháskóla Íslands á Mið-Fossum í Borgarfirði.
